Sögusetur 1627 efnir til sögugöngu nú á laugardaginn í fótspor Tyrkjaránsmanna. Gangan hefst klukkan 13 við verslunina Kjarval, Goðahrauni 1. Staldrað verður við hjá Hundraðsmannahelli, Fiskhellum, Landakirkju, Stakkagerðistúni og endað á Skansinum, þar sem skotið verður úr fallbyssunni.
Ragnar Óskarsson kennari leiðir gönguna og segir frá ýmsum atburðum tengdum Tyrkjaráninu.