Í dag 1. maí hefst sumaratíminn í Sagnheimum, byggðasafni og verður nú opið daglega kl. 10-17. Við förum rólega af stað en 17. maí fögnum við íslenska safnadeginum með opnun nýrrar sýningar: Eyjakonur í íþróttum í 100 ár. Fleira gerum við skemmtilegt þann dag, allt frekar á kvennavænginn enda erum við rétt að byrja að fagna 100 ára kosningaafmæli kvenna og er ýmislegt fleira á prjónunum fram á haust, bæði í Sagnheimum og í Einarsstofu. Fylgist því vel með tilkynningum úr Safnahúsi!