í afmælisdagskrá Sagnheima, byggðasafns fjallaði Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs, um byggðasafnið í fortíð og nútíð en Þekkingarsetrið tók við rekstri byggðasafnsins í janúar 2011.
Hér má sjá Pál Marvin og dr. Þorstein Inga Sigfússon, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og barnabarn Þorsteins Þ. Víglundssonar, frumkvöðuls byggðasafnsins í 80 ára afmælisveislu safnsins.