Undirbúningur safnahelgarinnar er í fullum gangi og enn er verið að vinna í hugmyndum sem við vonum að hægt verði að bjóða upp á um helgina. Við munum kynna viðburði Safnahúss sérstaklega – bæði hér og á fésbókarsíðu Sagnheima.
Sagnheimar verða opnir þessa daga kl. 13-16 – eða á meðan á viðburðum stendur.
Smellið á fyrirsögn fréttar til að sjá alla dagskrá safnahelgar, innanhúss og utan, sem nú þegar hefur verið ákveðin:
Dagskrá 30.10.- 2.11. 2014
Fimmtudaginn 30. október
Ingólfsstofa, Safnahúsi Vestmannaeyja kl. 14:00-16:00.
Ljósmyndasýning Gísla Friðriks Johnsen (1906-2000).
Börn Gísla Friðriks sýna myndirnar hans og spjalla við gesti ásamt starfsmönnum Ljósmyndasafns Vestmannaeyja.
Alþýðuhúsið kl. 17:00.
Opnun á sýningu Myndlistarfélags Vestmannaeyja “Ási í Bæ 100 ára”.
Einnig opið föstudag, laugardag og sunnudag frá 14-18.
Eldheimar kl. 20:00.
Sögur og lög í leikhúsi. Jóhann Sigurðarson söngvari og leikari syngur lög úr söngleikjum og segir valdar sögur úr leikhúsinu. Pálmi Sigurhjartarson leikur á píanó.
Aðgangseyrir kr. 2.000.-
Tónleikarnir hefjast með leik gítarsveitar Tónlistarskóla Vestmannaeyja undir stjórn Eyvindar Inga Steinarssonar.
Föstudagur 31. október
Stafkirkjan kl. 17:00.
Setning Safnahelgarinnar 2014.
Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir.
Tónlistaratriði.
Laugardagur 1. nóvember
Sæheimar, fiskasafn kl. 13:00-16:00
Sýningin “Blóm á Heimaey”
Ljósmyndasýning á helstu blómaplöntum sem finnast á Heimaey.
Einarsstofa, Safnahúsi Vestmannaeyja kl. 11:00
Illugi Jökulsson rithöfundur kynnir og les upp úr sínum frábæru knattspyrnubókum.
Fyrir börn á öllum aldri.
Einarsstofa, Safnahúsi Vestmannaeyja kl. 13:00
Lestur úr nýjum bókum.
Rithöfundarnir Gísli Pálsson og Kristín Marja Baldursdóttir lesa úr nýjum verkum.
Í beinu framhaldi er svo formáli að sýningunni Konur í þátíð. Gíslína Dögg Bjarkadóttir bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2014 sýnir. Um er að ræða skyssusýningu sem ætlað er að kynna stærri sýningu sem haldin verður í vor. Efnið er sótt til skáldverksins Karítas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.
Sagnheimar, byggðasafn kl. 15:00
Bjarni Einarsson fornleifafræðingur kynnir niðurstöður sínar og Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings á jarðsjárskönnun í Herjólfsdal sem gerð var nýlega að frumkvæði Þekkingarseturs, Söguseturs 1627 og Sögufélags Vestmannaeyja.
Þjóðminjasafnið sýnir valda gripi úr uppgreftri Margrétar Hermanns-Auðardóttur frá 1973-1980.
Vinaminni kl. 21:00
Húsbandið – Arnór, Helga m.m. leikur og syngur.
Sunnudagur 2. nóvember
Sæheimar, fiskasafn kl. 13:00-16:00
Sýningin “Blóm á Heimaey”
Ljósmyndasýning á helstu blómaplöntum sem finnast á Heimaey
Sagnheimar, byggðasafn kl. 14:00
Vilborg og hrafninn í Herjólfsdal.
Sögustund í Sagnheimum og ratleikur.
Teiknimyndasamkeppni úr sögunni kynnt.
Opið á Bókasafninu á laugardeginum kl. 11:00-14:00.
Opið í Eldheimum alla helgina 13:00-17:00.
Aðgangseyrir:
- FULLT VERÐ 1.900
- FJÖLSKYLDUVERÐ 4.900
- ELDRI BORGARAR 1.500
- 10-18 ÁRA 1.000
- 10 ÁRA OG YNGRI Í FYLGD FRÍTT
- HÓPAR 15 EÐA FLEIRI 1.500
Opið í Sagnheimum, byggðasafni á laugardeginum og sunnudeginum 13:00-16:00
Frítt inn um helgina
Opið í Sæheimum, fiskasafni á laugardeginum og sunnudeginum 13:00-16:00
Frítt inn um helgina