Starfsfólk Safnahúss Vestmannaeyja er nú önnum kafið við að undirbúa næsta atburð, sem er að minnast Óskars Björgvinssonar ljósmyndara sem hefði orðið 70 ára 5. september. í tilefni þess mun fjölskylda Óskars afhenda
gríðarlega stórt ljósmyndasafn hans 8. september, líklega um 150.000 myndir, sem spannar hartnær 40 ár úr lífi Eyjamanna. Til samanburðar má nefna að hið merka safn Kjartans Guðmundssonar, sem er hið stærsta sem fyrir er í safninu, telur um 20.000 myndir. Allir hjartanlega velkomnir!
Dagskrá:
Kristín Halla Baldvinsdóttir frá Þjóðminjasafni Íslands fjallar um gildi ljósmyndasafna.
Vinir og fjölskylda minnast Óskars með stuttum ávörpum.
Fulltrúar fjölskyldunnar afhenda safnið formlega.
Óvæntur dagskrárliður og kaffiveitingar.
Sýnishornum úr myndasafninu verður varpað á tjald á meðan á kaffiveitingum stendur og á veggjum Einarsstofu verða stækkaðar myndir úr landslagsmyndasafni Óskars auk annarra muna úr fórum fjölskyldunnar.