Goslokahátíð okkar Eyjamanna verður 5.-8. júlí og er ýmislegt í boði að vanda.
Fimmtudaginn kl. 17:15 – Gerður G. Sigurðardóttir opnar málverksýningu sína í Einarsstofu Safnahúss.
Laugardaginn kl. 11:00 – Samtal kynslóða, upplifun af gosinu. Spjallstund með Guðrúnu Erlingsdóttur í Sagnheimum.
Laugardaginn kl. 14:00. 50 ár frá fyrstu vatnsleiðslunni til Eyja – það kom með kalda vatninu. Farið yfir söguna, erindi, pallborð, stutt kvikmynd. Sagnheimar – bryggjusvæði.
Opið verður í Einarsstofu alla helgina kl. 10-17.
Hefðbundin sumaropnun í Sagnheimum, daglega kl. 10-17. Frítt inn á viðburði laugardags.