Vitafélagið- íslensk strandmenning og Sagnheimar, byggðasafn:
– Strandmenning, auður og ógnir –
Sunnudaginn 2. október kl. 13:30:
Auður við íslenska strönd. Kristján Sveinsson sagnfræðingur kynnir starf Vitafélagsins-íslenskrar strandmenningar.
Nordisk kunstkultur og nýsköpun í vitum: Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins segir frá samstarfi norrænu strandmenningarfélaganna og nýsköpun í vitum.
Hraunið tamið: Frá Axlarsteini til Urðarvita. Gísli Pálsson mannfræðingur fjallar um ógnir hraunsins sem rann á Heimaey árið 1973, björgun hafnar og byggðar og aðlögun Eyjamanna eftir gos.
Virkjum Golfstrauminn! Ívar Atlason forstöðumaður HS Veitna segir frá nýjum kafla í sögu upphitunar á húsum í Eyjum þar sem varminn (-sólarorkan-) sem er geymd í sjónum umhverfis Eyjar er notaður til upphitunar húsa.
STRANDAR-AUÐUR, vannýttur fjársjóður fyrir hönnuði. Emilía Borgþórsdóttir hönnuður. Ströndin og hafið er takmörkuð auðlind sem við þurfum að ganga vel um. Það eru mörg tækifæri fyrir hönnuði að nálgast þessa auðlind á ólíkan máta.
Að lokinni dagskrá mun Arnar Sigurmundsson framkvæmdastjóri leiða sögugöngu um hafnarsvæðið frá Edinborgarbryggju og vestur fyrir gömlu slippana.
Sýningar í Safnahúsi Vestmannaeyja sem tengjast vitum og strandmenningu.
Dagskráin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Myndina tók Sigurgeir Jónasson í Geirfuglaskeri 1968.