Laugardaginn 4. júlí kl. 15:30 gefst okkur einstakt og spennandi tækifæri til að sjá sýningu Steinunnar Jóhannesdóttur rithöfundar og leikkonu á Örlagasögu Hallgríms og Guðríðar á heimaslóðum Guðríðar hér í Eyjum. Sýningin sem er eintal höfundar hóf göngu sína á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi 2. apríl sl. og var sýnd þar fram í sumarbyrjun. Sýningin verður á bryggjusvæði Sagnheima og er í boði Ísfélags Vestmannaeyja hf. Aðeins er um þessa einu sýningu að ræða og eru allir hjartanlega velkomnir á meðan sæti leyfa.
PrevVerkefnið Saga og súpa fær styrk frá SASS27 June 2015NextTyrkjaránið 1627: Píslarvætti í Rauðhelli og upprisa í Krosskirkju12 July 2015
Warning: Undefined array key 0 in /web/s0717b/public_html/wp-content/themes/dfd-native/inc/loop/posts/post_single.php on line 279
Warning: Attempt to read property "slug" on null in /web/s0717b/public_html/wp-content/themes/dfd-native/inc/loop/posts/post_single.php on line 279