Eftirlýstir Íslendingar á 17. og 18. öld: Súpa, fyrirlestur og sýningaropnun. Samstarfsverkefni Myndlistaskólans í Reykjavík, Sagnheima og Daníels G. Daníelssonar sagnfræðinema við H.Í.
Samstarf Myndlistaskólans og Daníels spratt upp úr rannsóknum fyrir verkefnið ,,Fötlun fyrir tíma fötlunar” sumarið 2018. Í fyrirlestrinum kynnir Daníel rannsóknir sínar og dregur fram í dagsljósið nokkra eftirlýsta Eyjamenn og -konur.
Að loknum fyrirlestri opnar Daníel sýningu í Einarsstofu, sem samanstendur af 30 teikningum nemenda við Myndlistaskólann. Myndirnar eru unnar upp úr mannlýsingum í Alþingisbókum Íslands (1570-1800), sem þjónuðu þeim tilgangi að geta borið kennsl á strokufólk og óskilamenn á Íslandi.