Dagskrá safnahelgar í Vestmannaeyjum 2.-5. nóvember 2017:
Fimmtudagur:
kl. 13:30-15:30 Safnahús: Ljósmyndadagur Safnahúss: Ónafnkenndar myndir úr safni Kjartans Guðmundssonar.
kl. 15:30 Sagnheimar: Stóllinn hans Kjartans – opnun sýningar í Pálsstofu. Hvers virði eru munir án sögu?
Kl. 16:30 Stafkirkjan: Setning Safnahelgar. Kristín Halldórsdóttir syngur við undirleik Kitty Kovács.
kl. 17:30 Sagnheimar: Kristín Jóhannsdóttir: Ekki gleyma mér. Útgáfuhóf, allir velkomnir.
Föstudagur:
kl. 15:00 Sæheimar: Opnun ljósmyndasýningar úr pysjueftirlitinu 2017.
kl. 16:00 Slippurinn: Opnun myndlistasýningar Ástþórs Hafdísarsonar.
kl. 17:00 Eldheimar: Gísli Pálsson: Fjallið sem ypti öxlum. Útgáfuhóf, allir hjartanlega velkomnir.
kl. 18:00 Einarsstofa: Vita brevis. Opnun myndlistarsýningar Perlu Kristins.
Laugardagur:
kl. 13:00-15:00 Einarsstofa: Bókaforlagið Salka kynnir útgáfubækur 2017 og Sólveig Pálsdóttir, Stefán Gíslason og Sölvi Björn Sigurðsson lesa og kynna nýjar bækur sínar.
kl. 21:00 Eldheimar: Arnór og Helga flytja tónlist Peter, Paul og Mary. Sögumaður Einar Gylfi Jónsson. Aðgangseyrir kr. 1.000.
Sunnudagur:
kl. 12:00 Sagnheimar: Saga og súpa: Anna K. Kristjánsdóttir les og kynnir nýútkomna bók sína, Anna – eins og ég er.