Ratleikur á laugardag kl. 13-16. Jólakötturinn er í vandræðum enn eina ferðina og biður forvitna krakka um að hjálpa sér að finna nokkra gagnlega hluti fyrir hann og fjölskylduna, Grýlu, Leppalúða og jólasveinana. Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Enn er hægt að taka þátt í jólagetrauninni okkar: Hvað eru mörg jólakerti í skápnum í Einarsstofu? Dregið verður úr réttum lausnum á laugardaginn, kl. 16. Verðlaun.