Eyjamyndir og ný íslensk kvikmynd frumsýnd í Kviku á aldarafmæli Vestmannaeyjabæjar!
Í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli Vestmannaeyjabæjar er eyjaskeggjum og gestum boðið á kvikmyndahátíð. Um er að ræða myndbrot, kvikmyndir og heimildarmyndir um eða tengdar Vestmannaeyjum, en jafnframt er boðið til frumsýningar á nýrri íslenskri kvikmynd.
Myndirnar sem í boði verða:
Miðvikudaginn 8. mai 2019, kl. 17:00 – 18:00
Vestmannaeyjabær að fæðast (lifandi myndir frá fyrri hluta 20. aldar. Valinkunnir menn fengnir til að lýsa því sem fyrir augu ber).
Fimmtudaginn 9. maí 2019, kl. 17:30
Tyrkjaránið, (heimildamynd frá árinu 2002).
Föstudaginn 10. maí 2019, kl. 17:30
Eden (frumsýning á nýrri íslenskri kvikmynd).
Laugardaginn 11. maí 2019, kl. 16:00
Pysjuævintýrið (stuttmynd sem tekin var í Eyjum fyrir nokkrum árum)
Verstöðin Ísland (heimildamynd um íslenskan sjávarútveg sem LÍÚ lét gera. Er þetta fjórði og síðasti hlutinn sem tekinn var í Vestmannaeyjum)
Sunnudaginn 12. maí 2019, kl. 16:00
Síðasti bærinn í dalnum (byggð á sögu Lofts Guðmundssonar kennara og rithöfund. Er hún fyrsta leikna íslenska kvikmyndin).
Vestmannaeyjabær býður á allar þessar sýningar í tilefni aldarafmælis kaupstaðarins.