Vinir Árna Árnasonar símritara í samstarfi við Sagnheima og Kvikmyndasafn Íslands buðu til bíós í dag kl. 13 og nýttu tæplega 60 manns sér boðið. Um var að ræða myndbúta úr 9 klst. löngu myndefni Átthagafélagsins Heimakletts sem tekin var á árunum 1945-1960 af Sveini Ársælssyni, Friðrik Jessyni og fleirum. Sýningaraðilar stefna á nýju ári á samstarf við Eyjamenn um greiningu á einstaklingum sem koma fram í myndinni, svo skrá megi til framtíðar. Myndefni þetta er ómetanleg heimild um atvinnu- og byggðasögu Vestmannaeyja sem og menningararfinn okkar í heild.
PrevSagnheimar – uppskrift af jólamatnum14 December 2013NextMyrkraverk í Sagnheimum, byggðasafni29 December 2013
Warning: Undefined array key 0 in /web/s0717b/public_html/wp-content/themes/dfd-native/inc/loop/posts/post_single.php on line 279
Warning: Attempt to read property "slug" on null in /web/s0717b/public_html/wp-content/themes/dfd-native/inc/loop/posts/post_single.php on line 279