Í tilefni þess að laugardaginn 13. október eru rétt 50 ár frá því Árni símritari andaðist er boðið upp á dagskrá honum til heiðurs í Einarsstofu Safnahúss Vestmannaeyja kl. 16 – 17:30.
Allir hjartanlega velkomnir!
Dagskrá:
Hermann Einarsson minnist gamals vinar og les stutt brot úr væntanlegri bók með úrvali verka Árna.
Sigurgeir Jónsson ræðir um skáldskap Árna.
Útgáfunefndin kynnir bók Árna og gefinn er kostur á því að bætast í heillaóskalista bókarinnar.
Blítt og létt flytur útsetningar við ljóð Árna.
Heiðursgestur er Katrín Gunnarsdóttir, barnabarn Árna.