Sagnheimar, byggðasafn minnast lokadagsins og fagna sumaropnun með dagskrá laugardaginn 12. maí kl. 14.
Dagskrá:
- Dagskrá afmælisárs í Byggðasafni kynnt.
- Lokadagurinn í Vestmannaeyjum – fyrr og nú.
- Rósa Margrét Húnadóttir þjóðfræðingur á Síldarminjasafni Íslands fjallar um sjómannalög í erindi sínu ,,Draumur hins djarfa manns: frá sjómannalögum til gúanórokks.”
- Helga og Arnór kveðja vetrarvertíðina með sjómannalögum og flytja m.a. lag Helgu við ljóð séra Jóns Þorsteinssonar píslarvotts um lokadaginn.
Dagskráin er styrkt af Safnaráði og Menningarráði Suðurlands og er hluti af
afmælishátíð Safnahúss 2012.
Allir hjartanlega velkomnir!
Aðgangur ókeypis.