jæja, nú erum við búin að hengja upp myndirnar sem krakkar í 1.-5. bekk teiknuðu við söguna um Vilborgu og hrafninn í Herjólfsdal! Þrjár myndir fá síðan verðlaun á þrettándanum – 9. janúar. Myndirnar eru á veggnum við stigann upp í Sagnheima og verða til sýnis á opnunartímum Safnahúss, þ.e. mánud.-fimmtud. frá kl. 10-18, föstudögum kl. 10-17 og á laugardögum kl. 11-16. Endilega komið og kíkið á þessar flottu myndir!