Sagnheimar þakka gestum og velunnurum fyrir samveruna á árinu 2014 og óskar þeim velfarnaðar á nýju ári! Síðasta ár var mjög viðburðaríkt í Safnahúsi en alls voru skráðir 45 viðburðir og sýningar. Undirbúningur fyrir árið 2015 er löngu hafinn. Á nýbyrjuðu ári er þess víða minnst að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt hér á landi. Reikna má því með því að verulegur ,,kvenlegur halli” verði á viðburðum og sýningum Safnahúss á árinu. Viðburðir verða eins og áður auglýstir á heimasíðum og með auglýsingum í Safnahúsi og í Eyjafrétttum.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Safnahúsi á nýju ári!