Ráðstefnan Áhrif mormóna og lútherskra í Utah verður haldin í Alþýðuhúsinu laugardaginn 30. ágúst kl. 13-15
Fyrirlestrarnir eru allir fluttir á ensku.
Að lokinni ráðstefnu verður gengið yfir í Einarsstofu þar sem sýning um mormóna í Utah verður opnuð. Jafnframt verður boðið í skoðanaferð í Sagnheima, byggðasafn um sögusýningu Íslendinganna sem fluttust til Utah.
Dagskrá:
- Dr. Fred Woods prófessor: Íslensk lútherska í mormónaríkinu.
- Dr. Mark Mendenhall prófessor: Langafi sr. Runólfs Runólfssonar frá Stóragerði og í Dölum. Fyrirmynd Halldórs Laxness í Þjóðreki biskupi.
- Ray Valgardsson (barnabarn Guðrúnar soffíu Jónsdóttur frá Elínarhúsum): Lífið í Utah.
- Arlene Valgardson Flikkinger (barnabarn Jóhönnu Jónsdóttur, systur Hannesar lóðs): Fólkið mitt.
- Haraldur Þorsteinn Gunnarsson, Tómas Jóhannesson og Kári Bjarnason: Fjölskyldan sem varð eftir í Vestmannaeyjum – Hannes og Sesselía.
- Atli Ásmundsson: Ættarbönd milli heimsálfanna.
Allir hjartanlega velkomnir!