Þetta listilega saumaða handverk í eigu Sagnheima, byggðasafns er nú á Góusýningunni í Einarsstofu.
Svo illa vill til að merking myndarinnar hefur skolast til og því ekki ljóst hvaða listamaður var hér að verki. Verkið er nokkuð gamalt en safnstjóri saknar þess sárt að vita ekkert meira. Allar upplýsingar um listaverkið eða fyrri eigendur yrðu afskaplega vel þegnar á Byggðasafni eða í síma 698 2412 (Helga)