Undirbúningur sýninga, þar sem þess verður minnst að 40 ár eru frá því eldgos hófst á Heimaey stendur nú sem hæst í Sagnheimum. Sýningarnar hafa ekki enn tekið á sig lokamynd en verða opnaðar formlega 23. janúar kl. 17.
Ljósmyndsýningar verða í Einarsstofu/Safnahúsi og Pálsstofu/Sagnheimum auk þess sem verið er að vinna heimildasýningu í Pálsstofu. Krakkar í Grunnskóla Vestmannaeyja vinna líka sínar sýningar í Sagnheimum.
Þessar sýningar eru í vinnslu:
Einarstofa/Safnahús: Ljósmyndir Hjálmars R. Bárðarsonar: Gosið á Heimaey í svarthvítu. Gestasýning frá Þjóðminjasafni Íslands.
Pálsstofa/Sagnheimar: Ljósmyndir Sigurgeirs Jónassonar. Flóttinn frá Heimaey. Gosmyndir frá fyrsta mánuði gossins.
Í Pálsstofu er líka verið að útbúa sýningu sem kallast ,,Bátsferðin mín gosnóttina 1973″ og byggir á skráðum heimildum.
Krakkar í Grunnskóla Vestmannaeyja eru að vinna sýningu sem verður í anddyri Sagnheima, byggðasafns, spennandi verkefni þar á ferð.
Allar eru sýningarnar enn í vinnslu og geta því tekið breytingum fram að opnunardegi, 23. janúar kl. 17.
Allir hjartanlega velkomnir!