Í ár ætlum við að bjóða upp á örsýningar í hverjum mánuði, þar sem munir úr varðveislurýminu verða til sýnis, því verður alltaf eitthvað „nýtt“ á safninu. Í maí verður örsýningin, Hin íslenska kona, þar sem munir úr fórum kvenna í gegnum tíðina verða til sýnis. Við hvetjum því heimamenn að tryggja sér árskort á safnið og líta við mánaðarlega til sjá hvað er til sýnis. Hvað langar þig að sjá á næstu örsýningu?