- Sumaropnun (1. maí – 1. október): Alla daga 10-17.
- Vetraropnun (1. október – 1. maí): Mánudag – Laugardags 12-15.
- Annar opnunartími eftir samkomulagi.
Opnunartími
Aðgangseyrir
- Aðgangseyrir fyrir 18 ára og eldri: 1.300 kr.
- Hópar (10+): 1.000 kr
- Eldri borgarar: 1.000 kr.
Aðgengi
Sagnheimar eru á 2. hæð Safnahúss Vestmannaeyja. Skábraut er inn í húsið og lyfta á milli hæða. Sýningarrými á jafnsléttu og fært hjólastólum. Bílastæði ágæt.
Ferðahópar
Sagnheimar bjóða upp á leiðsögn fyrir stærri hópa. Hægt er að bóka leiðsögn á netfangið sagnheimar(hjá)sagnheimar.is. Taka skal fram óskir um dagsetningu, tímasetningu og gestafjölda auk nafns og símanúmers tengiliðs. Aðgangseyrir fyrir hópa (10 eða fleiri) er 1.000 kr. á mann.
Staðsetning
Í Safnahúsi v/Ráðhúströð
Skólahópar
Boðið er upp á margvíslega fræðslu fyrir skólahópa. Kennurum býðst einnig að fara um sýningarnar með nemendum á eigin vegum.
Vinsamlegast bókið heimsókn á sagnheimar(hjá)sagnheimar.is. Koma þarf fram nafn skólans, símanúmer tengiliðs, árgangur, áætlaður fjöldi nemenda ásamt óskum um dagsetningu og tíma eða séróskir. Öll fræðsla fyrir skólahópa er ókeypis.