Sú hefð að fjallkona flytji landsmönnum hátíðarljóð á 17. júní hefur tíðkast hér á landi frá árinu 1947. Að vanda mun fulltrúi Sagnheima, byggðasafns sjá um að skrýða fjallkonu okkar Eyjamanna úr fjársjóðskistum safnsins. Fjallkona okkar í ár er Dröfn Haraldsdóttir og flytur hún ávarp sitt í Hraunbúðum kl. 10:30 og á Stakkagerðistúni kl. 14. Hún mun einnig líta við á Norrænu sumarþingi kvenfélaga í Akóges.
Í Einarsstofu er forvitnileg sýning og fróðleiksmolar um forseta lýðveldisins.
Opið er í Safnahúsi kl. 10-17 og ókeypis inn í Sagnheima í tilefni dagsins. Gleðilega hátíð!
Hér að ofan má sjá fjallkonu Eyjamanna 2015 Sigríði Láru Garðarsdóttur ásamt heiðursverði sínum.