Ísfélag Vestmannaeyja í samstarfi við Sagnheima bjóða upp á sérstakan Ísfélagsdag í byggðasafninu nk. laugardag kl. 13-16. Starfsmönnum Ísfélagsins ásamt mökum, börnum og barnabörnum er boðið að koma og skoða safnið og léttur ratleikur er fyrir fjölskyldufólk og þá sem vilja. Heitt verður á könnunni í tjaldinu og safi fyrir börnin.
Safnið er einnig opið almenningi á þessum tíma en hópum er bent á að hafa samband við safnstjóra, s. 698 2412, svo að hægt verði að finna tíma sem hentar sem flestum.